Monday, September 20, 2004
Jæja það er margt að frétta af mér....
Við Örn erum núna búin að koma okkur huggulega fyrir í höllinni (þessi íbúð minnir mig svolíitð á höll því það er svo rosalega hátt til lofts) . Pabbi fór í gærkvöldi en hann er búinn að vera hjá okkur um helgina að hjálpa okkur að flytja inn og kanna svæðið. Ég veit ekki hvernig við hefðum farið að án hans...
Þegar flutningabíllinn kom með allt dótið okkar á föstudaginn þá þóttist hann ekki geta keyrt inn að dyrum hjá okkur. Bíllinn var mjög stór og hár og var ekki með neinum lyftara eða börum svo að hægt væri að keyra brettin (sen voru þrjú) svo að við þurftum að losa af brettunum og bera úr bílnum einn og einn kassa...hræðilegt. Það voru frekar mörg skref með hvern kassann að dyrum hjá okkur. Og bílstjórinn var svo “góður” að standa upp í bílnum og benda okkur á hvað við gætum burðast með næst. Pabbi fann auðvitað leið til að létta verkið. Hann tók eina af ruslafötunum okkar og hlóð á ca tveimur kössum í einu og rúllaði því svo léttilega á undan sér.. hann er svo sniðugur. Ég sé eftir að hafa ekki tekið mynd af því. Svo var maður sem á bílskúr á móti íbúðinni okkar sem þurfti að komast fram hjá flutningabílnum en komst ekki neitt svo í staðin fyrir að verða pirraður og flauta þá fór hann að hjálpa okkur að bera inn...sætt af honum svo við gáfum honum íslenskt Nóa súkkulaði að launum...ég held að flutningabílstjórinn hafi hreinlega orðið pínulítið öfundsjúkur og séð eftir því að hafa ekki hjálpað okkur ;)
Það eru myndir og pistill á www.musbel.com undir Sheffield og svo eru líka komnar lesta leiðbeiningar þar fyrir þá sem vilja koma að heimsækja okkur í “höllina”.
Fimmtudaginn og föstudaginn í þessari viku fer ég á international student kynningu þar sem bæði skólinn, Sheffield og önnur mikilvæg málefni verða kynnt. Það verður öruglega athyglisvert að kíkja á það. En svo er innskráning í skólann þann 27. og 28. sept og svo byrjar ekki kennsla fyrr en 4. október....rosalega seint.
Nú er ég officially byrjuð að blogga...

<< Home