Wednesday, April 19, 2006
Veðrið er æðislegt...mér líður bara eins og ég sé í útlöndum...ef svo má orða...hihih. En spáin segir að það eigi meira að segja eftir að hlýna ennþá meira, verst að það er engin strönd hérna en ég verð bara að láta Moldánna nægja ;) En ég held að fólk fari uppí fjalla kofana sína til að fá privacy og hafa það notalegt í sólskyninu. Á veturna fer það þangaði á skíði og á sumrin í sólbað. En það er mjög algengt að fólk eigi fjallakofa því að á meðan kommonisminn var hér allsráðandi lagði fólk allt í það að eignast kofa og svo fór það þangað til að fá að vera í friði og gera það sem það vildi.
Uppi í skóla er búinn að hanga miði á tékknesku og í dag fékk ég þýðingu á honum. Eftir að við skilum inn verkefninu í byrjun næsta mánaðar fer allur bekkurinn í fjallaferð í tvo daga. Þar fáum við næsta og síðasta verkefnið... Það verður stemning!!
Ingibjög er búin að vera hérna hjá mér í viku og fór á þriðjudaginn aftur til danaveldis. Við erum búnar að lenda í allskonar skemmtilegum og ógleymanlegum ævintýrum saman ;) Það var alger draumur að vera með henni hér í Prag.

Á páskadag fórum við til Karlovy Vary sem er heilsubær um tvo klukkutíma frá Prag. Við fórum með íslenska ferðafélaginu auðvitað og sátum í fullri rútu af íslendunum. Ingibjörg kom með Nóa Siríus páskaegg sem Steinunn hafði sent handa okkur..Takk kærlega fyrir það Steinunn :)

Á leiðinni í heilsubælið... eins og Ingibjörg kallaði það, þá stoppuðum við “in the middle of nowhere” og fararstjórinn tilkynnti okkur að þarna væru víetnamar með markað...við Ingibjörg spenntum eyrun....og þeir sérhæfa sig í GARÐÁLFUM og BARNAFÖTUM....við fengum kast....svo bætti hann við...ó já og þeir eru líka með fullorðinsföt...ó hjúkk!!! En ég hélt ég mundi aldrei heyra orðin barnaföt og garðálfar í sömu setningunni. Þetta skreytti aldeilis ferðina en ég hef ekki vitað annað eins skrýpó. Þetta voru ekki bara garðálfar heldur klúrir garðálfar líka... þetta var rosalega erfitt því við gátum ekki haldið andlitinu en enginn annar virtist sjá neitt fyndið við þetta svo við urðum að reyna að hemja okkur í garðálfa fárinu!!!

Við kíktum auðvitað út á lífið hér í Prag...og skemmtum okkur vel..við þræddum alla uppáhalds staðina mína...lentum í ýmsum ævintýrum :)

Ég er búin að uppgötva Prag uppá nýtt eftir að Ingibjörg var hérna hjá mér. Ég skal nefna nokkur dæmi:
-Við fundum bíó, með miklum erfiðleikum þó, en myndirnar eru á ensku !!!
-Við uppgötvuðum að SubWay er í Prag!! Mikil gleði og mikið gaman það....

-Uppáhalds skóbúðin mín er víst á tveimur hæðum...ég hélt að lagerinn væri niðri en Ingibjörg bara strunsaði niður og fann alveg nýja hæð...eða vídd..á búðinni....magnað!!!
- Ég fattaði nýja leið í skólann minn....Nú get ég tekið hvaða tram sem er frá heimilinu mínu í skólann eða niðrí bæ !!
Við fengum okkur að borða á Reykjavík...Íslenskt JÁ takk. Við komum þarna soldið sein eitt kvöldið og spuðum hvort að væri búið að loka eldhúsinu en þá svarar þjónninn að það sé ekki lás á eldhúsinu svo því loki aldrei!! Alger brandarakarl. Þá báðum við um borð og þá segir hann: já alveg sjálfsagt, og réttir okkur sitthvorn lítinn hvítan blaðsnepilinn og segir okkur svo að setjast bara þar sem okkur langar...já húmoristarnir leinast allstaðar!!

En við lentum að sjálfsögðu í leigubíla ævintýrum...bara svona eins og allir sem koma til Prag...en við lékum bara sama leik og þeir leika svo við komum nokkuð sæmilega út úr bílunum...en fyrra skiptið þegar kallinn rukkaði okkur um uppsprengt verð á heimfer þá borguðum við honum sanngjarnt verð og vel það...þá æsti hann sig en þá spurði ég hann kurteisislega hvar mælirinn hans væri..þá benti hann á útvarpið sitt....við tjáðum okkur um að þetta væri nú ekki trúverðugur mælir og þá reif hann upp símann sinn og sagðist vera að hringja á lögguna...þegar við sögðum bara já og sátum sem rólegastar þá lagði hann símann frá sér og hélt áfarm að æsa sig, en þá kvöddum við hann bara og fórum. Ingibjörg sagðist hafa séð á símann hjá honum og hann var ekki einusinni að hringja neitt...allavega borguðum við honum vel fyrir keyrsluna svo hann gat alveg verið sáttur...
Við fórum auðvitað uppí kastalana eins og sannir túristar, en við fengum ekki alveg rétta veðrið því það var rigning og rok. Ég tók upp regnhlifar druslu og við eina vinkviðu fauk hún upp skaftið brotnaði. Ingibjörg smellit mynd af mér við þessar athafnir, en þegar við skoðuðum svo myndirnar í tölvunni áttuðum við okkur á því að það var maður á bakvið mig að taka video sem náði greinilega þessu atriðið á band...verst að geta ekki fengið að sjá það hjá honum ;)

En ég man ekki meira í bili og er að stökkva út í blíðuna og röllta um til að njóta sólarinnar.....

<< Home