Friday, July 13, 2007

Góðar fréttir !!!!

Fyrst voru nokkrir valdir úr stórum bunka af umsóknum til að koma og vinna í trial viku hjá Established & Sons (www.establishedandsons.co.uk)....svo komum við nokkur í prufu-viku.....svo völdu þau einn úr þeim hópi...og vitið þið hvað...þau völdu MIG !!! Ég er í skýjunum eftir símtal frá þeim áðan !!
Já mikið af upphrópunar merkjum og brosköllum ;) En ég mæti á mánudaginn og fæ uppgefin verkefni sem ég á að sjá um :) Hljómar mjög spennandi...ég lærði helling á vikunni sem ég var hjá þeim í prufu svo ég get ekki ímyndað mér hvað ég á eftir að læra mikið á 3 mánuðum :) Jibííí....
|