Tuesday, September 21, 2004
Þá er þessi dagur brátt á enda...ég er ekki búin að ná að gera mikið í dag. En á morgun verður brjálað að gera, við Örn förum í bæinn og skráum okkur bæði inn í skólana og það á eftir að taka sinn tíma...og svo þurfum við að erendast á einhverja fleiri staði í leiðinni. Við eigum líka von á sendingu af dóti sem við pöntuðum úr vörulista og þá getum við farið að “full klára “ íbúðina. Kanski förum við svo annaðkvöld til Manchester að fá okkur kvöldmat og kíkja á stórborgina. Þetta er samt bara hugmynd, aldrey að vita...

<< Home