Saturday, April 22, 2006

Hellúúú
Hér er sko sól og blíða og mér líður eins og ég sé í sólarlöndum. Loftið er heitt og meira að segja á kvöldin er heitt. Ég fór út í gærkvöldi á hlýrabol og var vel hlýtt!!! Þetta er svo algerlega svart og hvítt þar sem ég er búin að vera að frjósa í hel í þykkri vetrarúlpu.
En ég fæ ekki að njóta blíðunnar vegna þess að nú er rosa törn hjá mér því ég er að vinna að því að ljúka þessu verkefni mínu. Það er mest tölvu- og módel vinna svo það er ekki eins og ég geti setið úti við það :(
Joe er að reyna eins og hann getur að skapa sólar/úti stemningu inní íbúðinni þar sem hann opnar gluggana inní herberginu sínu uppá gátt. Svo sitjum við í forstofunni í tölvuvinnslu og hlustum á fuglasönginn úti :)

Á föstudaginn stóð ég við umferðaljósin fyrir utan skólann minn og var að bíða eftir græna kallinum, þá var kallað fyrir aftan mig: Takið eftir!!! Á þessum gatnamótum er gönguljósið á í 5 sekúntur sléttar, svo við þurfum að hlaupa!! Frekar fyndið að vera allt í einu stödd inní stórum hóp af íslendingum...það gerist sko ekki á hverjum degi get ég sagt ykkur. En fararstjórinn var sá sami og fór með okkur Ingibjörgu í ferðina til Karlovy Vary, eða heilsubælið...einnig ;)

Það kom prófessor uppí skóla í vikunni sem er frá Kaliforníu og hann sagði mér að hann hefði verið gesta prófessor í stúdíóinu og væri að koma í stutta heimsókn. Hann sagðist hafa heyrt að ég væri frá Íslandi og fór þá að segja mér að hann væri að vinna í að fara til Íslands í lystaháskólann og vera gesta prófessor í arkítektardeildinni.

Jamm gaman að þessu...annars er ekkert krassandi í fréttum sossem...
Later..
|