Tuesday, February 20, 2007

Góðan og blessaðan daginn :)

Í augnablikinu sitjum við Natalie í kaffiteríunni í skólanum og ræðum hvernig við getum safnað peningum fyrir New Designers sýninguna sem við komumst vonandi inná og verður lokapunkturinn á náminu okkar. Vandamálið er að við vitum ekki hvort við förum á sýninguna því að kennararnir ákveða það í lok annarinnar....og ef við söfnum fullt af peningum fáum við bara smá brot af því til baka og þeir sem komast
á sýninguna njóta alls sem við höfum unnið fyrir. Þannig að við höfum ákveðið að skipuleggja söfnun fyrir okkur sjálfar og halda þá bara peningingum fyrir okkur ef við förum ekki....Við vorum að hugsa um að baka kökur og selja en við getum hvorugar bakað..svo stakk Natalie upp á að selja dvd myndir til kunningja og vina en það er hálf ólöglegt....svo datt mér í hug að við gætum búið til skartgripi...ekkert alvöru !! en við gætum skorið út úr litríku plastefni og sett saman á mjög ódýran hátt, eitthvað sem er sölulegt...
Eruð þið með einhverjar tillögur fyrir söfnunina ?!?
|