Monday, November 20, 2006
Bradum koma blessud jolin
Í gær voru hátíðarhöld í miðbænum...tónleikar með McFly sem ég er ekki mikill fan af ;) Tívolítækjum var spreðað út um allt og sykurhúðaðar möndlur til sölu á hverju horni. En ástæðan fyrir þessu var að það var verið að kveikja formlega á jólaljósunum. Klukkan 5 var talið niður og McFly kveiktu ýttu á takkann til að hleypa rafmagni á allan bæinn....já þetta var mjög dramantískt ;) Það eina sem vantaði til að kveikja á jólaskapinu voru jólalögin...það var fólk að spila tónlist á götum bæjarins en enginn spilaði jólalög...hvað er það?!? Sem betur fer var ég með Robert vini mínum og hann söng jólalögin fyrir okkur á rölltinu um bæinn svo nú er ég komin í jólagírinn ;)
Á föstudags kvöld kom ég heim frá Mæju og Dave...íbúðin þeirra er rosalega sæt og fín og gott að gista hjá þeim...takk fyrir mig :) Við mæja skruppum til London þar sem Mæja tók viðtal og við hittum svo Karin. En við fórum um miðbæ Cambridge á föstudeginum og ég get ýmindað mér að þetta sé ofboðslega fallegur bær eða borg...sorry vil ekki móðga neinn ;) En því miður þá var veðrið svo grátt og rigndi svo hressilega að við þurftum að synda í gegnum pollana á leiðinni heim! En við erum semí-vatnsheldar sem betur fer ;)
Nú er að líða að fleiri skila inn dögum í skólanum...og jólin nálgast óðfluga !!! Ég verð mætt á Íslandi áður en þið vitið af !! :)
En já eitt að lokum....ég held ég útskirfist ekki fyrr en í Nóvember!!! Þau sem kláruðu í fyrra voru að útskrifast um daginn...mér finst þetta mjög skrýtin tímasetning og ætla að fá nánari upplýsingar fljótlega!!
Bless í bili.....

<< Home