Monday, August 06, 2007

Skokk Blogg og nokkrar myndir ;)

Ég fór út að skokka með Sólrúnu (önnur systirin sem ég bý með) við skokkuðum í risastóran skrúðgarð sem er hérna rétt hjá og vorum allt í allt klukkutíma að skokkast....ég var farin að sjá fyrir mér að ég gæti ekki mætt í vinnuna á morgun því ég gæti ekki hreyft mig af harðsperrum en svo teygði ég mig í allar áttir en held ég verði samt í pyndingum. ;) En ég er með skokk á dagskrá núna á hverju kvöldi!! Vá hvað mér líður vel :)

En ég skal setja núna inn nokkrar myndir því það er orðið svo langt um liðið.....
Þetta erum við Dagný (önnur systirin sem ég bý með)...


Þetta er tekið út um gluggann hjá okkur á eftirhæðinni....


Sólrún og Ryan vinur hennar :)
|