Thursday, September 23, 2004

Enskir sendibílstjórar hljóta að vera alveg einstæður flokkur manna. Ég er búin að lenda í þremur af þeim stofni síðan ég kom hingað og allir eru þeir stórfurðulegir (og öruglega ekki þeir greindustu...ssss). Sá fyrsti sem ég lenti á kom með sendinguna okkar frá Samskipum. Þið getið lesið um hann í pistli hérna fyrir neðan. Dyrabjallan okkar ef svo má kalla er ekki beint hávær, en það kemur lágt prump hljóð þegar maður dinglar. Annar sendillinn var að kom með sendingu frá Amazon. Hann kom mjög snemma laugardagsmorguns svo að við höfum ekki vaknað við “prumpið” enda er svefnherbergið okkar mjög langt frá útidyrahurðinni. Sendillinn skildi eftir miða frá sendingarfirirtækinu sem á stóðu allar upplýsingar um hvernig ætti að ná í pakkann en hann væri nú eftir öllum reglum, af því við svöruðum ekki, í úthverfi í Sheffield, ekki beint auðvelt fyrir okkur að ná í pakkann. Bílstjórinn hafði skrifað í einn af reitunum FXT sem við skildum að sjálf sögðu ekki hvað átti að þýða. Svo að Örn hringir til þeirra og athugar hvað þetta þýðir...þeir vissu það ekki heldur, svo þeir þurftu að hafa samband við bílstjórann og þegar það gerist þá segir hann að hann hafi skilið pakkann eftir í íbúð númer D sem er við hliðina á okkar.......Váá ég hefði orðið brjáluð ef við hefðum farið og reynt að finna útibúið þeirra og komist svo að því eftir heilan dag í pælingar að pakkinn var í næstu íbúð...bílstjórinn hefði alveg getað krotað það á miðann !!!
Jæja ég er bara svo pirruð yfir þessu að ég læt móðann mása...
Sá þriðji átti að koma með sendingu frá fyrirtæki með húsgögn sem ég pantaði úr vörulista... ég pantaði samt ekki húsgögn því við erum með meira en nóg af þeim en ég pantaði allskonar aukahluti sem vantar í íbúðina. Þegar ég pantaði gaf ég upp símanúmerið mitt svo að hægt væri að hringja í mig ef ég væri ekki við þegar sendingin kæmi. Þriðji sendillinn kom líka eldsnemma um morgun og náði ekki heldur að vekja okkur með “prumpinu” þannig að hann skildi líka eftir blað í bréfalúgunni...ath. hann hringdi ekki í mig. Svo við hringdum og báðum þá að koma aftur en þá var það ekki hægt fyrr en daginn eftir, og að þeir mundu koma á milli 8 og 10 um morguninn. Svo að næsta morgun ríf ég mig upp klukkan 8 og fer framúr því ég ætla sko aldeilis að ná honum þegar hann kemur. Ég sit blísperrt við tölvuna og reyni að halda mér vakandi til 10:30 en þá hefur ekkert enn gerst. Svo ég skríð uppí og bið Örn að standa vörð. Nú er klukkan orðin 14 og ekkert bólar á neinum. Ég hringdi áðan í flutnings firirtækið og spurði hvort það hefði orðið einhver misskilningur en þá er mér sagt að hann gæti komið á milli 8-18 á daginn og ekki væri hægt að gefa nákvæmari tíma....NÁKVÆMARI TÍMA..... þetta eru 10 klukkutímar !!!
Svo að Örn er núna í bænum að klára að borga fyrir skólann og skrá sig inn en ég þarf að vera heima á meðan og BÍÐA ef svo skyldi vera að sendibílstjórinn kæmi.
En úti er æðislegt veður, sól og blíða svo ég ætla að hætta að pirra mig á heimskum sendlum og kíkja á sólina...
|