Monday, April 24, 2006
Sumar Lúkkið
Það er ennþá blessuð blíðan hérna..alvöru flórída veður...ég fór útá videoleigu um helgina og þegar ég kom út af leigunni var sturtu rigning og þrumur og eldingar. Ég þurfti að standa undir skýli í um 30 mínútur á meðan himininn létti á sér. En ég var bara klædd í stuttermabol sem mér fanst soldið asnalegt í svona rigningu en um leið og það var skrúfað fyrir var komið stutterma veður aftur :) En þetta er svo ótrúlegt, það fór úr því að vera of kallt fyrir hlýjustu vetrar úlpuna í að vera of hlýtt fyrir þynnsta sumarjakkann!! Ég hef aldrei lent í svona umbreytingum áður...
Ég er nú samt ekki búin að geta notið sólarinnar í botn því ég er búin að vera límd við tölvuna að rembast við 3d teikningar. En í dag hafði ég löglega afsökun til að reka nefið aðeins í sólina, því ég átti tíma hjá engum öðrum en Tony&Guy. Já ég var að fara í fyrsta skipti á þá þekktu stofu...en þar tóku á móti mér tvær stúlkur sem settu mig niður í stól fyrir framan stóran spegil og svo ræddum við hvað við ætluðum að gera við hausinn á mér. Önnur þeirra var technician (litar hárið) og hin hair master (klippi konan). Við komumst að niðurstöðu...eða allavega þær voru greinilega með á hreinu hvað þær vildu gera og ég bara jankaði....ég var búin að leggja fram grunnreglurnar. En klipparinn sagði að hún vildi skiptinguna í burtu...og bætti svo við þeirri skemmtilegu setningu: "it's so hot right now" Svo var hafist handa og eftir um þrjár klukkustundir var komin niðurstaða. Ekkert dramantísk breyting en ég er rosalega ánægð :) Sumar lúkkið komið á ;)
Heimurinn er svo lítill að það er ótrúlegt...það kom í ljós að the technician þekkti Briet, íslensku stúlkuna sem er yfir í Vero Moda. Hún fékk íslenskan klippi gaur til að koma og vinna með þeim á Tony&Guy og gera hárið á starfliði Vero.
Ég fer í skólann í fyrramálið með nýja hárið mitt og fer á fund með prófessornum. Ég ætla að spurja hann meðal annars að því hvort ég megi klára önnina aðeins fyrr og fara heim fyrir útskriftina hans Snorra Freys...sjáum til hvað hann segir ;)

<< Home