Friday, October 20, 2006

Hún á afmæli í dag..hún á afmæli í dag…hún á afmæli hún Edda, hún á afmæli í dag!! JEiiiii til hamingju með daginn elsku Edda :)


Góðan daginn,
Gærdagurinn var mjög viðburðaríkur :)
Ég byrjaði daginn á að fara með bekkjarfélögum á skauta!.!....já ég fór á skauta..eitthvað sem ég hef ekki gert í 100 ár...eða kanski frekar ca 18 ár!! Jiii. En vitir menn, ég náði að halda jafnvægi á ísnum og betur en það :) Ég held þetta sé svona eins og að læra að hjóla, ef þú lærir það einusinni gleymuru því aldrei ;)

Ég verð að viðurkenna að ég er komin í smá jólafíling...enda ekki annað hægt held ég :) Það er búið að setja upp jólaskraut í götunni minni og búið að kveikja á því líka...Það er búið að setja upp jóla útstillingarnar í stóru John Lewis gluggana...Róbert er búinn að vera að hlusta á jólatónlist og svo höfðu skautarnir og heitt kakó við skautasvellið sitt að segja ;)
En mér finst mjög skrýtið að hefja jólastemninguna svona snemma því að Holloween er 31 október og er mikil hátið hérna í Breta landi og mér finst ekki alveg passa að blanda því og jólaljósunum saman!.!!

En já þá er komið að skandal dagsins...hemmm. Já ég sem sagt keypti mér tannkrem...sem er nú ekki frásögufærandi nema það að mér fanst það frekar dýrt fyrir svona litla túpu en á henni stóð að þetta væri eitthvða alveg æðislega gott og mælt með af tannlæknum og tannvernd og hvaðeina!! Svo ég skellti mér á hana. Í morgun ákvað ég að taka upp þetta nýja fína tannkrem og bursta tennurnar...en mér fanst það eitthvað skrýtið þegar ég byrjaði að busta því það var ekkert bragð af því og það freiddi ekkert!!! Mér til mikillar skelfingar fann ég að tannkremið límdist við tunguna og góminn á mér...ég reif upp túbuna og hélt áfram að lesa á hana og sá ekkert nema frech breath og bla bla þar til ég tók eftir pínulítilli mynd þar sem var verið að setja krem á tanngóm!!!! Þetta var lím til að líma gerfitennur uppí sig!! Jii já ég þurfti að kroppa þetta af tungunni á mér og gómnum...úfffff ojjj

Góða helgi...)
|