Tuesday, September 19, 2006

Góðan daginn,
Ferðalagið til Manchester gekk eins og í sögu, Susan kom að ná í mig og svo fékk ég að gista hjá þeim, það var búið að útbúa rosalega kósý og sætt svefnherbergi handa mér :) Daginn eftir eða í dag....vá mér finst eins og dagurinn í dag hafi verið heil vika. En þá fór Susan með mér að ná í lyklana að íbúðinni minni á Phoenix og svo fór hún með mér í geymsluna að ná í dótið mitt og Örn mætti þar á bílnum sínum líka svo þetta var tekið með trukki :) klukkan þrjú voru allir orðnir vel sveittir og þreyttir og allt mitt hafurtastk komið í hús ;). Ég er svo búin að vera að reyna að greiða úr öllu og koma fyrir en herbergið mitt er aðeins stærra en í fyrra svo ég er rosalega ánægð með það.
Það er ekki símainstunga í herberginu mínu en svo lukkulega vill til að Natalie og Emma búa í íbúðinni á móti mér og erum við með sér gang fyrir okkur með gler þaki þar sem sólin skýn innum....ok smá útúrdúr en já þær eru semsagt báðar með símainnstungur svo við ætlum að fá okkur þráðlaust internet og deila því :) ég er rosagleg fegin vegna þess að ég kannaði kostnað við að láta setja símainnstungu í herbergið í fyrra og það kostaði um 25 þús krónur takk fyrir!!!
En ég er núna hjá Erni á internetinu og svo ætlum við að borða gómsætt lasagnia, sem Örn er að elda um þessar mundir...mmmmm

Ég á að mæta í skólann á mánudaginn....vá hvað það er spennandi :) Þeir kalla þetta kynningar dag. En þá hittum við kennarana okkar og þeir fara yfir komandi ár :) Mega Sega....

Morgundagurinn verður puð því ég klára að fara í gegnum dótið mitt og fer svo og tala við símfyrirtækið mitt og bankann....ohhh það er alltaf svo gaman ;) Já en ég er rosalega fegin að vera komin með allt dótið í íbúðina...góður árangur, takk fyrir Susan og Örn :)

Ég veit ekki hvenær ég fæ færi á að komast á internetið næst en ég skrifa nokkrar línur um leið og ég get :)
|