Sunday, May 21, 2006

Sweet Swiss

Halló halló, þá er ég komin aftur heim til mín eftir Sviss. Ég er svooo fegin að ég komst með, þetta var algert æðis....mjög stíf og þreytandi dagskrá við að skoða mis flottan arkítektúr....algert upplifelsi :) Ég kynntist krökkunum í bekknum miklu betur, þessi ferð hefði auðvitað átt að vera farin í byrjun annarinnar. Ég var búin að undirbúa mig undir farfugla heimilin með því að ýminda mér það versta og sá fyrir mér íþróttasal þar sem allir svæfu undir einu þaki og eitt klóset og ein sturta....en svo var sko aldeilis ekki. Við gistum á tveimur gistiheimilum og það fyrra var eins og fínasta design hótel, ég ætlaði ekki að trúa því...allt glænýtt og snirtilegt. Við sváfum reyndar 5 saman í hinu fínasta herbrgi. En seinna farfuglaheimilið var ekki eins gott en það var sko alger lúxus samt miðað við svona gistingu. Þar vorum við 12 í einu herbergi og innréttingar og tilheyrandi ekki glænýtt eða eftir nýjustu týsku stöndurdum ;)

Við keyrðum í gegnum Þýskaland og svo til Austurríkis þar sem við löbbuðum um og skoðuðum nokkrar byggingar, við vorum einn dag í Zurich í Sviss (ok, kann ekki að stafa það) og svo vorum við tvo daga í Basel. Á heimleiðinni á laugardaginn fórum við sveitaleið og skoðuðum nokkrar byggingar á leiðinni. Á tímabili keyrðum við á örmjóum vegi þar sem var hildípi niður öðrum megin við vegarkantinn og stundum voru svo skarpar beygjur að rútan þurfti að stoppa og fara millimerter í einu til að ná beygjunni...mér stóð ekki alveg á sama! En við stoppuðum meðal annars í rosalega fallegum litlum bæ inná milli fjallanna, og skoðuðum byggingu þar sem við þurftum að klifra upp snarbrattar brekkur til að komast að henni...þegar ég loksins komst upp þá fattaði ég að ég þyrfti einhvernvegin að komast niður, það var byrjað að rigna sem bætti ekki líkurnar á að komast niður á báðum fótum með reisn!! Það heyrðust háar drunur og ég hélt það væru þrumur en þá benti bekkjabróðir minn mér á að þetta væri grjóti sem var að detta úr fjöllunum í kring. Ég og Radka, bekkjarsystir mín, príluðum aðeins hærra til að komast uppá veg sem við vonuðum að mundi leiða okkur niður-á-við, sem hann gerði. Þegar við svo komum niður og að brekkunni ógurlegu voru allir að fikra sig niður, stoppuðum við til að horfa á fólk rúlla niður brekkurnar....hahaha ;)

Hópurinn að sóla sig fyrir utan eina af byggingunum...


Við fórum flest öll saman út á föstudagskvöldið og kíktum á klúbb sem var á 31 hæð, ég fékk hellur í eyrun á leiðinni upp í liftunni!!


En þegar ég fór á klósetið á þessum stað fékk ég hláturskast...maður sat á klósetinu fyrir framan rúðu og horfði á útsýnið....mjög óþægilegt að fara á klóstið en ég hafði það af á endanum þegar ég var búin að ná mér eftir kastið...


Radka og Petr


Aftanó Jakob, Martin, Jonluca (ítalinn) og Joe...
|