Wednesday, September 29, 2004

Í morgun í skólanum útskýrði kennarinn allt um áfangana og hvernig við ættum að vinna verkefni. Við þurfum að vinna mjög mikið sjálfstætt (sem kemur mér ekkert á ávart) og við erum með stórar eyður og stundum suma dagana ekki í neinum tímum. En þessar eyður eru til þess að við getum verið að vinna á eigin spítur í skólanum t.d. á verkstæðunum, bókasafninu í ransóknarvinnu, tölvustofunum eða bara í "studioinu" okkar. Mér líst rosalega vel á þetta. Ég er spennt að byrja á fyrsta verkefninu sem við eigum að byrja á á föstudaginn en það er hópvinna og þá verðum við í hóp með einhverjum úr hinum deildunum eins og gullsmíði, multimedia hönnun og product design. Það er til þess að við kynnumst krökkum af hinum brautunum og svo að við förum meira um skólann og kynnumst hinum stofunum og vinnusvæðunum. Eftir hvert verkefni sem við gerum þurfum við að halda fyrirlestur fyrir bekkinn og nokkra kennara þar sem við þurfum að útskýra allt nákvæmlega og svo þurfum við jafnvel líka að svara spurningum frá hópnum. Ég er auðvitað meira kvíðin fyrir fyrirlestrunum því að ég er ekki með enskuna á hreinu. Ég er alltaf stressuð yfir því þegar ég tala að ég sé að segja eitthvað heimskulegt eða sé að orða hlutina skríngilega, sem ég geri alveg öruglega stundum. En þetta þýðir bara að ég þarf að undirbúa mig mun betur en englendingarni (það eru bara englendingar í bekknum mínum). Örn á öruglega eftir að þurfa að hlusta á kynningarnar mínar þó nokkru sinnum  Ég hlakka allavegana mikið til. Þetta verður hrikalega mikil vinna og rosalega erfitt en það er sko þess virð.
|