Tuesday, May 02, 2006

SKYNDI ÁKVÖRÐUN !!!

Ég er ekki búin að gera annað en að sitja fyrir framan tölvuna og vinna í verkefninu mínu sem ég skila á föstudaginn :) Það gengur ágætlega en þetta er ekki búið enn!!

Í dag fór ég uppí skóla til að ræða verkefnið endanlega við prófessorinn...þá tók ég eftir því að fólk var að skrifa sig á lista og borga aðstoðarkennaranum pening?? Þegar prófessorinn sá að ég var að spá í hvað væri í gangi sagði hann, ó já við erum að fara til Sviss í fjóra daga að skoða Svissneskan arkítektúr, ykkur er velkomið að koma :) Já ég þurfti bara að ákveða mig á stundinni hvað ég vildi gera því ég fór á biðlista og er efst á honum svo ég kemst 99% með í ferðina. En þetta kostar bara 5000 kr ísl rúta og gisting. Rútuferðin tekur 9 tíma og guð má vita hvernig gistingin er! En báðar leiðirnar verða keyrðar að nóttu til svo það tekur ekkert af þessum 4 dögum í Sviss :) En ég get ekki sleppt svona góðu tækifæri. Við förum 17 maí sem er þá orðið frekar nálægt heimferðinni minni til Íslands en ég ætla samt að meika það, ég verð bara á kafi í síðasta verkefninu allar aðrar stundi!! :)
Svo nú er ég bara á leiðinni til Sviss....þetta grunaði mig ekki í morgun þegar ég vaknaði ;)

Já og eitt fyndið í sambandi við þessa hundamenningu hérna!! Ég fór á klósetið uppí skóla áðan. Það eru tvö klóset og þegar ég kem inn er önnur klóset hurðin hálf opin og hundur stendur með nefið inná klósetið og var að troða loppunum undir hurðina og reyna að opna hana meira!! Er ekki í lagi með fólk...getur ekki farið á klósetið í friði fyrir þessu...ég hef ekki vitað annað eins hallæri!

Sól og sumarkveðjur frá Prag :)
|