Tuesday, October 24, 2006

Hæhó...

Veðurfrétta-hornið:
Það er að kólna í Sheffield en samt ekki orðið neitt sértaklega kallt enþá....Mæja hringdi í mig í gær frá London og sagði mér að þar væri þrumu óveður !!

En annars gengur mitt daglega líf út á lærdóm og svo geri ég auðvitað í því að hitta fólk og hafa gaman :)
Ég hitti til dæmis Ingó í hádeginu í dag...við ræddum um heima geima og sykursýki :) erum að yfirfara bækling sem á að gefa út um þau málefni..eða svona sálfræðilegu hliðina á því meðal annars...
En já ég er búin að hitta Joe og Ceri líka þau buðu mér í heitan hádegismat á sunnudaginn...mjög gott og gaman..þau eru búin að kaupa hús ekki langt frá campusinum mínum á Psalter Lane og ég er búin að gefa þeim borðið mitt og stólana í innflutningsgjöf! Þau voru rosalega ánægð með það :)

En já við Natalie fórum í bæinn í dag til að leita okkur að búningum fyrir holoween sem er næsta þriðjudag...Robert verður með party og öllum bekknum er boðið meðal annars og það er búnings þemi sem er: death by something...Sem sagt þarft að hafa dáið út einhverju...held að Rob ætli að ver death by chocolate ;) En mér datt í hug að koma sem death by car...og mála hjólför á mig..en ég set inn myndir og segi ykkur betur frá þessu ævintýri því við Natalie erum enþá að búa til sögu í kringum þetta ;)
En ég hef ekki farið í búning síðan ég var um 7 ára þegar mamma klæddi mig upp eins og Lína langsokkur...hún gerði það svo vel að ég þekkti ekki sjálfa mig þegar ég sá mig í speglinum svo ég fékk panic attack og mamma þurfti að þrífa allar freknurnar framan úr mér og taka niður flétturnar !! Hihi alger auli :Þ

En já hafið það gott....ta
|