Thursday, November 02, 2006
Sjarmi Englands...
Mig langaði að skrifa nokkur atriðið sem mér finst einkenna England og geta komið út sem menningarsjokk ef svo má kalla....en aðalega finst mér þetta bara vera sjarmi Englands ;)
• Fólk fer út að skemmta sér í grímubúningum allan ársins hring og þar með eru grímubúninga sérverslanir opnar allan ársins hring út um allan bæ. Þetta gefur til kynnað að Halloween er stór hátíð...og mikið gert úr því !!! Ég hef ekki dressað mig upp í grímubúning síðan ég var lítil stelpa með tígarspena svo að ég er búin að vera hérna í tvö ár án þess að halda uppá grímubúninga og það að gleyma halloween er eins og að gleyma jólunum !!!
• Grímubúningur er kallaður “fancy dress” frekar spes !
• Leigubílar taka bara við peningum...neinei ekkert kortavesen !!!! En þeir eru heiðarlegir og keyra þig alltaf beinustu og styrstu leiðina á áfangastað....sem er ekki hægt að segja um Prag ;)
• Á baðherbergjum eru einungis ein innstunga og hún er einungis fyrir mains shavers...nei takk engar hárþurkur eða sléttujárn inná baðherberginu...
• Hér sé djamm alla daga vikunnar...ekki það að ég djammi svo mikið ;)
• Djammið stendur frá 20 til ca 1-2. Sem sagt þegar ég fyrst kom til landsins missti ég alltaf af djamminu ;)
• Ostahnífur....hvað er það?!? Já Englendingar vita ekki hvað ostaskerari...mér finst það álíka og að vita ekki hvað gaffall er. En Natalie eldaði handa mér máltíð um daginn og ég dróg upp ostaskerarann...hún spurði fyrir hvað þetta væri...svo var mér mikið skemmt þegar hún reyndi að nota hann!! Þegar ég sýndi henni svo hvað þetta undratól gat gert fanst henni þetta frábær uppfinding og sagði að ég væri eins og pro !! Ég spurði hana hvernig hún skæri ostinn og þá sagðist hún bara rífa hann eða skera með venjulegum hníf.!.. Hvar fór það á mis að koma ostaskeraranum á markað í Bretlandi! ;)
• Gatnamót við lestarstöðvar og flugvelli eru alltaf með stórt letur á götunni LooK left og LooK right sem mér finst frekar fyndið...en það er auðvitað góð ástæða fyrir því...það er keyrt á vitlausum vegarhelming hérna og aumingjans útlendingarnir eiga sér einskis ills von !! ;)
• Greiðslu leiðir...vá ég er ekki enþá orðin vön því....það er boðið uppá peningar, kort, eða ávísun. Hvergi minnst á millifærslu...Þegar ég ætlaði að borga fyrir íbúðina mína og vildi millifæra þá var horft skrýngilega á mig og mér sagt að það væri bara ekki hægt!! Ó jú víst er það hægt !! Ég man óskýrt eftir því frá því ég var mjög ung að pabbi var með ávísunar heftir og skrifaði ávísanir....ó já það er sko langt síðan.
• Bankarnir !! Vá ég gæti skrifað heila bók um þá en ég ætla ekki að drepa ykkur úr leiðindum við að lesa um það...kem bara með lítið dæmi. Kortið mitt var að endurnýjast svo ég gat ekki notað það á meðan þeir voru að útbúa nýtt. Mér var tilkynnt að ég gæti farið í sérstakt útibú til þess að taka pening út af því vegna þess að ég var með skilríki. Ég mætti hjá gjaldkera og hún segir við mig að ég geti ekki tekið út pening nema vera með ávísun.....ég setti upp undrandi svip og sagði að hún hlyti að geta hjálpað mér, að lokum lét hún undan....hún fyllti út pappír...pikkaði í tölvuna í 10 mínútur...fór svo inná bakvið og náði í fleiri pappíra og handfyllti þá alla út... rétti mér svo pappír sem ég þurfti að fylla út...svo pikkaði hún aðeins meira í tölvuna og rétti mér svo peninginn..!...Fólk situr í bankanum og fyllir út pappíra áður en það fer til gjaldkera...ég man þegar ég var smá stelpa að fara með mömmu í bankann þá þurfti hún að fylla út pappíra fyrir gjaldkerann.....Vá gamaldags...
• Jakki er eitthvað sem ekki þekkist á djamminu...Sama hvernig viðrar eða hvort það er stelpa eða strákur. Mér verður kallt bara af því að mæta stelpunum í minipulsum og pínulitlum hlírabol...blárar í framan...neee ég frekar skelli mér í jakkann en ég sker mig líka úr ;)
• Ég þarf alltaf að skilgreina stöðu mína ef ég gef upp nafnið mitt....ógift, fráskilin eða girft...mér finst það ekki koma neinum við...en ég hringdi í fyrirtæki um daginn til þess að fá upplýsingar...ég gaf upp nafnið mitt og þá þurftu þeir að fá uppgefið hvað ætti að vera fyrir framan það!!! Til hvers....já svo ég er sem sagt Miss Snorradóttir ;) En þegar ég fyrst kom hingað vissi ég ekki hvað þetta þýddi og vissi ekki hvað ég ætti að kallast...þannig að þegar ég sótti um hjá bankanum varð mér á að kalla mig MS sem þýðir fráskilin !!! hihihi það er ekki hægt að breyta því hjá þeim því bankarnir eru misskilin vélmenni svo ég verð bara að vera fráskilin í þeirra skrám....ekki að það breyti neinu í viðskiptum mínum við þá ;)

<< Home