Friday, October 29, 2004

Vá hvað er langt síðan ég hef skrifað. Það er sko margt búið að gerast á þessum tíma. Ég er búin að vera í skólanum að læra og kynnast ýmsu. Ég fékk 6 vikna verkefni sem er hálfnað núna og ég er komin með ágæta hugmynd um hvað ég ætla að gera og hvernig ég ætla að ljúka því, en það er allt búið að vera hálf óljóst þangað til fyrir stuttu.
En í vikunni þá var fundur hjá bekknum og við fengum að vita að við eigum að fara í alskonar ferðir, t.d. í verksmiðju sem hefur eitthvað að gera með segulstál held ég og svo er byggingin sem verksmiðjan er í víst rosalega flott. Svo í desember förum við dagsferð í stóran skúlptúra garð. Það verður spennandi að sjá. Og svo síðast en ekki síst þá förum við til London í tvo daga og eina nótt í lok desember. Við förum á sýningar og gerum eitthvað skemmtilegt (það verður í fyrsta sinn sem ég fer til London) !!!

Við Örn keyptum okkur bíl !!! Rauðan bíl  fyrir þá sem þurfa meiri útskýingar en það þá er þetta Mazda...ég fer ekkert út í meiri smáatriði með það. Örn ætlar að taka myndir af honum og setja á síðuna sína. En ég er enþá að venjast umferðinni hérna og læra leiðirnar og áttirnar. Það er sko ekki auðvelt, það snýr ALLT öfugt fyrir mér. Meira að segja er stefnuljósið öfugu megin, svo að ég set alltaf rúðuþurkurnar á þegar ég ætla að beygja.

Á sunnudaginn er halloween svo það er allt í hrylling hér. Það eru hrúgur af graskerjum í matvörubúðinum og grímur, blóð, og hnífar í öllum búðargluggum. Það er mikið af raðhúsum hér með risa stórum stofugluggum. Þegar ég labbaði heim úr skólanum í fyrradag þá dauðbrá mér því það sátu tvær nornir með skær blátt hár út í glugga og vinkuðu mér. En það er líka byrjað að jólaskreyta hérna, fyrir tveimur vikum síðan var búið að hengja jólaskraut yfir aðalverslunargötuna niðrí bæ. Og um daginn fór ég inn í apótek sem var eins og jólaland það var svo vel skreytt.

Bless í bili...
|