Thursday, November 11, 2004

Ég er búin að rápa á milli allra símfyrirtækjanna í leit að því hagstæðasta, ódýrasta og bestu þjónustunni. Ég komst að niðurstöðu og það var T-mobile sem er bleikt símfyrirtæki...þið vitið, Vodafone er rautt, Orange appelsínugult og o2 blátt. En T-mobile voru með bestu og ódýrustu kjörin svo ég endaði á því að labba út frá þeim með eins árs samning og ókeypis sony Ericsson K700 síma, án þess að borga pund fyrir. Tíhí.
Hjá hinum símfyrirtækjunum til dæmis orange (sem ég þoli ekki, ömurlegasta þjónusta ever) þarf maður að vera búinn að búa í landinu í að minnsta kosti 3 ár til þess að geta farið á samning. En í T-mobile þá skrifaði gaurinn bara að ég hefði búið hér í 3 og hálft ár !!! Skondið. En það er einhver samkeppni hjá símfyrirtækjunum núna það er alltaf verið að hringja í okkur Örn og reynt að senda okkur síma og selja okkur áskrift. Þegar einn frá Orange hringdi í mig þá sagðist ég þurfa að hugsa málið og þá spurði hann: What is there to think about?? Hann skildi ekkert í mér að taka ekki þessu gullna tilboði...
|