Saturday, November 06, 2004

Við Örn fórum á stúfana í dag að leita að ódýrasta og besta símfyrirtækinu. Við komumst að niðurstöðu um að eitt þeirra væri ódýrast...en við fáum bæði nýja síma!! Hjá flestum símfyrirtækjunum færðu frían síma ef þú ferð í áskrift, þannig að við getum alveg eins fengið okkur síma fyrst við ætlum í áskrift. Örn ætlar bara að nota símann sem hann fær til þess að fara með á djammið og í þesskonar notkun. En við fáum ekki samning alveg strax því við þurfum að sýna einhverja pappíra frá bankanum sem við erum ekki enn búin að fá en fáum líklegast fljótlega.

Á eftir förum við svo í veislu með Ingó. Vinkona hans og nágranni er að halda uppá 60 ára afmælið sitt annað árið í röð !! Henni fannst svo gaman í fyrra að halda uppá stórafmæli svo hún ætlaði bara að gera það aftur þetta árið. Susan og Sara eru í París yfir helgina svo að þær missa af veislunni. En ég ætla að fara að drífa mig að hafa mig til...
|