Friday, November 05, 2004

úff húff púff, þetta er búinn að vera erfiður dagur. Við Örn vöknuðum eldsnemma til þess að fara með bílinn í netta skoðun, Þannig að þessi dagur er búinn að vera bíllaus. Vá ég gæti ekki verið ánægðari með að eiga bíl :) Það er búið að vera hræðilegt án bílsins. Ég er nánast ekkert búin að gera í dag annað en að vera að labba og reyna að koma mér á milli staða, strætó er algjör tímaþjófur. En ég komst af og við erum búin að fá bílinn aftur.

Kvöldið er búið að vera eins og gamlárskvöld, allt í sprenginum og flugeldum :) Það er bomb-fire night í Englandinu. Það eru flugeldasýningar og skemmtiatriði út um allan bæ, en því miður er ég búin að vera með svo mikinn hausverk og slöpp að ég hef ekki getað notið þess :( Það er að lagast núna en það er orðið of seint að fara á flugeldasýningar.
Í stuttu einföldu máli þá er verið að halda uppá þennan dag vegna þess að sáutjánhundruð og súrkál var kall sem ætlaði að reyna að brjótast inn í höll og drepa kónginn !! En hann var gripinn og brenndur...falleg saga. En síðan þetta gerðist hefur verið haldið uppá þennan dag með flugeldum (ég er ekki viss um að kóngurinn hafi endilega verið góði kallinn í þessu máli).
En allavega þá nýti ég bara kvöldið í að læra...
|