Monday, November 01, 2004

Í dag var ég á tutorial þar sem ¼ úr bekknum hittir 1-2 kennara (leiðbeinendur). Á þessum fundum ræðum við hugmyndirnar okkar og fáum krítiseringu. Yfirleitt er ég áttavilltari eftir þessa fundi, flestir í bekknum verða það líka. Stundum fær maður góða punkta sem hjálpa manni en oftast ruglar þetta bara og maður hangir í lausu lofti á eftir. Í dag græddi ég ekkert á tutorialnum. En ég þróaði hugmyndina mína heilmikið þegar ég ræddi hana við nokkra úr bekknum. Þannig að í dag var ég lengi á verkstæðunum að gera tilraunir. Ég vona að ég fari fljótlega að sjá heildar lookið. En það sem ég er að hanna út frá eldspýtustokknum er geymsla, hirsla, skál eða fat...sem sagt það er ekki alveg komið í ljós enþá en aðal pælingin er að það sé hægt að breyta forminu á hlutnum eftir hentisemi.
|