Tuesday, November 30, 2004

Helgin var æðisleg, Ingibjörg og Gummi komu til okkar eldsnemma á föstudaginn og fóru eldsnemma á mánudaginn. Ég ætti kanski bara að skrifa hvern dag fyrir sig:

Föstudagur:
Við örn vöknuðum klukkan 5:20 og lögðum af stað til Manchester Airport. Ég með kortið og Örn við stýrið. Allt gekk eins og í sögu, við fundum flugvöllinn og fórum í terminal 1 til þess að athuga hvort þau væru þar en þá sáum við að þau voru lent í terminal 2 aðeins á undan áætlun. Svo við drifum okkur út í bíl og á leið okkar til terminal 2 sem var ekki langt frá fórum við inná hringtorg og beygðum út en þá sáum við í bakspeglinum að við áttum að beygja næst til að fara á terminal 2. Leiðin að flugvellinum var mjög vel merkt en um leið og við vorum komin á flugvöllinn þá voru merkingarnar frekar óskýrar og smáar. En þessi smávilla gerð það að verkum að við vorum komin hálfa leið til Liverpool áður en við gátum snúið við !!! Þetta var hræðileg lífsreynsla. Ég hringdi í bæði Ingó og Susan til að fá leiðbeiningar en það var ekki eins og það væri auðvelt því við vissum ekki einu sinni hvar við vorum. Þegar við loksins fundum skilti sem sagði okkur hvar við værum þá sögðu þau: ó nei eruð þið þar, þið eruð komin LANGT frá flugvellinum!! Og svo æjuðu þau og óuðu. Það hljómaði ekki vel svo ég var ekkert það þýða það fyrir Erni og stressa hann meira upp. En klukkutíma seinna komumst við á réttan kjöl og gátum komist að flugvellinum í rétt terminal og hittum loksins Ingibjörgu og Gumma.
Seinna um daginn fór Örn í skólann og á meðan fórum við Ingibjörg og Gummi í bæinn að kíkja í búðir og á jólastemninguna. Svo um kvöldið skruppum við í bíó og sáum vafasama mynd, the forgotten. Við kíktum svo í heimsókn á Ingó og Susan og drifum okkur svo heim að sofa því að þetta var búinn að vera langur dagur fyrir alla.

Laugardagur:
Gummi og Ingibjörg vöknuðu eldsnemma og fóru út í búð að kaupa egg og beikon. Svo við borðuðum veislu morgunmat saman. Gummi fór svo á netið og fann leiðina til Meadow Hall (stór verslunarmiðstöð í Sheffield). Ég keyrði og Gummi fylgdist með kortinu og Ingibjörg var með allar beyjur og götunöfn á blaði svo það gekk alveg eins og í sögu að komast þangað. Örn var heima að læra svo hann gæti eytt kvöldinu með okkur. Við vorum heillengi í mollinu, en náðum samt varla að skoða helminginn af því, vegna þess að það er svo stórt. Sarah kom og hitti okkur og fór svo með okkur heim. Við pöntuðum pizzu og byrjuðum að hafa okkur til fyrir djammið. Þegar við Ingibjörg vorum í miðju kafi að velja föt á okkur þá helltist allt í einu myrkur yfir allt. Stór hluti hverfisins var rafmagnslaus. Við kveiktum á fullt af kertum og höfðum bara kósý stemningu. Nágrannar okkar, Joe og Cery bönkuðu uppá með fleiri kerti. Við Ingibjörg fórum svo til að ná í pizzurnar okka en þegar við komum að Pizza Hut þá sat fólk inni og var að reyna að borða í kolniða myrkri, frekar fyndið. Við fórum inn og þjónarnir sögðu að pizzan okkar væri inní miðjum ofni að skemmast eins og væri. Þannig að það varð því miður ekkert úr Pizza Hut. Við keyrðum aðeins lengra og fundum búð með rafmagni og keyptum tilbúnar pizzur til að setja í ofninn. En þegar við vorum á leiðinni til baka þá hringdi Örn og sagði að rafmagnið væri komið á. Við höfðum á misst af rafmagnsleysinu, við vorum frekar svekktar yfir því. En pizzurnar voru góðar og djammið skemmtilegt. Við fórum á skemmtilegan stað niðrí bæ og svo var haldið í partý rétt áður en staðnum átti að loka. Við Ingibjörg og Gummi fórum með Söruh í vinnuparty en það var haldið í einhverju “bæli” ef svo má að orði komast. Þannig að við stoppuðum ekki legni þar heldur fórum til vina hennar Söruh í heimahúsi og hittum skemmtilegt fólk þar. Örn og Joe voru mættir þangað á undan okkur. En þar var mjög gaman þangað til að strákur sem hafði verið allan tímann í partýinu fékk skyndilega brjálæðiskast og kastaði öllum út. Við færðum þá bara partýið heim til okkar sem var góð hugmynd því það var rosa stuð.

Sunnudagur:
Við löguðum til eftir partýið og fórum svo og keyptum efnivið í bakstur og morgunmat. Gummi hvíldi sig fyrir framan sjónvarpið og skemmti sér við að fylgjast með pool móti. Örn þurfti að læra og við Ingibjörg bökuðum jólakökur. Við gerðum brúnar kúlur og svo súkkulaði bita kökur. Þetta var alltsaman mjög skrautlegt þar sem við fengum ekki flórsykur í brúnu kúlurnar og ofninn minn er gasofn svo að súkkulaðibita kökurnar bökuðust skringilega en þær brögðuðust mjög vel. Eftir jólabaksturinn buðu Ingibjörg og Gummi okkur fínt út að borða. Við fórum á Líbanskan veitingarstað sem var mjög góður. Eftir það fórum við á pöbb í pool þar sem Gummi sló met. Honum tókst að skjóta hvítu kúlunni niður 5 sinnum í röð og svo tvisvar sinnum eftir það. Mér finnst að hann hefði átt að fá medalíu.
Svo fórum við heim og fengum okkur ís og smákökur og spjölluðum saman. Við fórum ekki að sofa fyrr en um tvö en svo vöknuðum við um fjögur og fórum út á lestarstöð. Úff það er erfitt að vakna svoa um miðja nótt. En Ingibjörg sendi mér sms í dag og sagði að ferðalagið hefði gengið eins og í sögu og þau gátu sofið alla leiðina heim.
|