Tuesday, November 23, 2004

Hmmmm...ég er að undra mig á því hvar tívolíið í Sheffirld er?? En alltaf þegar maður fer erlendis þá er tívolí eða vatnsrennibrautagarður á næsta leiti. Ingibjörg og Gummi komast í jólaskaðið með því að fara í tívolí í Danmörku...og þar er sko jólastemning. Það vantar eitthvað svoleiðis hér. Kanski væri hægt að gera eitthvað jólalegt við alla pöbbana sem eru hérna út um allt. Til dæmis væri hægt að setja jólasveina gengi við eitt barborðanna að fá sér mjólk og jólakökur. Nei nei ég segi bara svona. En það er vert að kanna hvar næsta tívolí er staðsett hér í Englandinu, ég væri alveg til í eina sallíbunu :)

Þarsíðustu helgi var kveikt á jólaljósunum í mollinu hér í Sheffield. Og hver haldið þið að hafi kveikt á ljósunum? Nú það var enginn annar en Simon Cowell! Ég var nú ekki viðstödd en ég fór í mollið um helgina og það var ansi vel og fallega skreytt.
|