Monday, November 22, 2004

Svo að ég haldi áfram með veðurfréttir þá fer hlýnandi í veðri og snórinn er farinn. Satt best að segja þá sakna ég hans ekkert voðalega mikið. En í nótt var svo mikið rok að ruslafötur lágu eins og hráviðri út um allar götur og gangstéttar. En ég svaf allt rokið af mér.

Ég ætla að reyna að halda jólaskapinu þrátt fyrir snjóhvarfið svo ég fer kanski að "baka" brúnar kúlur...mmmmmmm.
|