Saturday, December 04, 2004

Dagurinn er búinn að vera ágætur. Ég er búin að vera heima að læra og svo "bakaði" ég brúnar kúlur á meðan Örn skaust út að ná í mynd handa okkur.
En á Íslandi er kalkúnaveisla því að mamma og Hans eiga afmæli í dag 3.desember. Ég óska þeim innilega til hamingju. Ég stakk upp á því að tölvunni og netmyndavélinnni yrði rúllað fram svo ég og Ingibjörg gætum verið með í veislunni. En mömmu leist ekkert allt of vel á það :P En núna er ég búin að vera að spjalla við Hugrúnu Lenu með netmyndavélinni, alltaf gaman að sjá fólk.
|