Wednesday, December 01, 2004

Við Örn (aðalega Örn) erum í leit að internet samningi, svo við getum verið um allt hús með tölvurnar að læra. Internetið sem við höfum er bara hægt að nota inni í forstofunni okkar þannig að tölvurnar eru alltaf við útidyrahurðina sem mér finnst ekki sniðugt, og svo er internetið að detta út í nokkra daga í senn svona þegar því sýnist. Alla vega ekki hægt að stóla á það. En sem sagt Örn er í sjokki eftir að hafa skoðað internetsamninga. Honum fannst hann vera farin aftur til fornaldar. Englendingar eru víst ekki mikið að fylgja tæknistefnum. Það liggur við að við þurfum að kaupa okkur, þið munið þetta ískrandi módem, kanski ekki alveg en nánast. En þið vitið að á Íslandi er fyrirtæki að nafni Hive að bjóða upp á súperhraða á svipuðu verði og þetta venjulega sem hinir eru að bjóða uppá. Ég sagði honum að ég væri svosem ekkert hissa því Englendingarnir eru ekki einusinni búnir að uppgötva Vero Moda!!! Ég fór á netið til þess að athuga hvar Vero Moda væri staðsett og vitir menn það eru alls tvær verslanir í öllu humangus England. Vitið þið hvað þær voru? í einhverri borg sem við höfum aldrei heyrt um og ég fann hana ekki einu sinni á kortinu. En ég á eftir að gera nánari leit að heinni seinna. Það eru samt þrjár verslanir á Íslandi og svo hellingur af þeim í Danmörku og hinum norðurlöndunum. Púffff erfitt líf að hafa ekki almeninlegar fatabúðir hérna. Sem sagt við Örn erum bæði gáttuð.
|