Thursday, May 04, 2006
"Þetta kemur allt með kalda vatninu" Sá sem sagði þetta var soldið mikið bjartsýnn!! Ég er búin að vera uppí skóla með tölvuna mína að vinna frá því kl 9 í morgun, nú er klukkan 5, sem sagt að verða kominn sólarhringur. Jamm og já en ég er nú ekki sú eins sem er svona crazy. Við erum fjögur hérna, einn er reyndar farinn að leggja sig í sófanum en við hin höldum áfram að vinna með góða tónlist í græjunum :) Þetta gengur en gengur samt hægt...Örn er mín vinstri hönd því hann er áferðar, renderingar og final lúkk snillingur :) En hér eru myndir af verkefninu mínu svona svo þið sjáið hvað ég er að bagsa við. En þessi bygging er mismunandi eftir frá hvaða sjónarhorni er litið á hana svo það er búið að vera miklar pælingar í hvaðan sjónarhornið á að vera á þetta stórvirki ;)
Ég fékk sjokk þegar ég kom í skólann hérna og þurfti að gera einn stól í 3d studio, ef ég hefði vitað að ég ætti að gera eitt stykki garð, heila byggingu og allt inní henni þá hefði ég líklegast flúið héðan...nee segi svona, en þetta er allavega persónulegt afrek hjá mér útaf fyrir sig get ég sagt ykkur! Ég er búin að læra svo endalaust mikið á þessu að ég bara get ekki einusinni lýst því...sem betur fer kanski fyrir ykkur ;)

<< Home