Thursday, November 02, 2006

Veðurfréttir og slæmar fréttir...

Ég er að reyna að bæta upp fyrir lítið blogg með því að blogga nokkrum sinnum á dag!!

Ég er búin að hafa gluggann í herberginu mínu galopinn dag og nótt en í dag var fyrsti dagurinn sem ég varð að loka glugganum því það er orðið of kallt....Vetur Konungur mættur!!!Ekki lengur hægt að labba út á peysunni..Er það rétt að það sé kominn snjór á Íslandi? Ef það mundi snjóa hérna væri jólaskapið komið í botn!! Það er búið að skella risa stóru jólatré fyrir ofan Jhon Lewis og kveikja á því líka svo það er ekkert verið að bíða eftir jólunum hér þau eru bara nánast mætt ;)

En þá eru það slæmu fréttirnar...Joe vinur minn datt í vinnunni, en hann vinnur á spítala. Hann flækti reymarnar sínar og datt í stiga og braut á sér aðra hnéskelina..! úff ég fæ alveg hroll...Hann fór í einhverskonar sjokk og það það þurfti að flytja hann á annað sjúkrahús og láta hann fá hlátursgas við sjokkinu!!...Joe og Ceri eru búin að kaupa hús sem þau flytja í eftir um 5 vikur...ég mæti og hjálpa við flutningana þar sem Joe verði ekki öflugur í þeim...

P.S. þar sem ég er búin að vera svo öflug í blogginu þá vil ég minna ykkur á myndirnar hérna fyrir neðan frá Halloween ;)
|