Sunday, December 12, 2004
Það er erfitt að vera að vinna í skólaverkefnum og að vera að hugsa um það að fara til Íslands. Ég hlakka allavega rosalega til og er byrjuð að taka til allt það helst sem ég hef með mér. Við verðum auðvitað með extra mikinn farangur núna vegna þess að við erum með svo mikið af jólagjöfum.
Nú er lokaspretturinn hjá Erni, ég get varla talað við hann vegna þess að þá er ég að trufla hann. Í gær vann hann 20 tíma straight og svo á hann efitr að vera að vinna þar til klukkan 11 í fyrramálið þegar hann á að skila af sér. Svo fer hann öruglega að sofa og á líklegast eftir að sofa í tvo sólarhringa miðað við hvað hann er búinn að fá lítinn svefn.
Við Örn vorum á litlu jólunum hjá Ingó og Susan áðan. Við vorum alls sex þar sem Sarah og mamma hennar Susan voru líka. Við fórum með brúnar kúlur handa þeim sem ég er búin að enska yfir í “Danish christmas candy”, vegna þess að “brown balls” hljómaði ekki alveg nógu vel. Það var rosalega mikil jólastemning hjá þeim, allt vel skreytt og jólalegt. Við byrjuðum á því að sprengja jólasprengjur sem voru eins og við könnumst við áramóta borðsprengjurnar með málshætti, kórónu og svo smádót. Örn fékk eyrnalokka en ég fékk pínulítinn heftara, svo ég bauðst til að skipta við hann. Við settum kórónurnar upp og hófum máltíðina sem var hefðbundin ensk jólamáltíð, kalkúnn með fullt af góðu meðlæti. Eftir matinn var gjöfum dreyft til allra, og Örn fékk rosalega fínan penna og ég fékk stóra jólakúlu til þess að setja í baðið. Þegar allir voru búnir að opna gjafirnar komu fleiri gjafir sem voru bara til okkar Arnar. Þetta voru jólagjafirnar frá Ingó, Susan og Söruh, þau vildu að við opnuðum þær strax svo við þyrftum ekki að taka þær með okkur til Íslands. Örn fékk Porsche (ekki samt í fullri stærð) og ég fékk body shoop tösku með baðvörum í. Það kom rosalega skemmtilega á óvar að fá fullt af gjöfum :) Svo var boðið upp á þriggja rétta eftirrétt, allt eftir ensku hefðinni. Úff ég er sko södd eftir æðisleg litlu jól.

<< Home