Wednesday, December 15, 2004
Ég er búin að vera eins og þeytibrandur í allan dag. Ég er að hamast við tölvuverkefni sem ég þarf að skila inn fyrir föstudaginn en ég ætla að fullklára það í dag. Svo erum við Örn að fara í mollið á eftir og vonandi klára að versla inn jólagjafir. En svo í kvöld ætla Sara og svo tveir vinir hennar að koma í mat, við erum líka búin að bjóða Joe og Cery, ég vona að þau komi líka. Við ætlum sem sagt að gera eitthvað skemmtilegt saman svona áður en við Örn förum til Íslands :)
Ég fer í nokkra tíma á morgun og svo ætla ég að fara að pakka...jibbííí.
Ég fer í nokkra tíma á morgun og svo ætla ég að fara að pakka...jibbííí.

<< Home