Tuesday, January 18, 2005
Í dag var fyrsta snókoman í Sheffield. Það var alveg ekta jólasnjór, reyndar aðeins of seinn á ferðinni. En snjórinn hélst ekki lengi því það er svo hlýtt hérna, hann er allur farinn núna.
Við Örn fórum að versla í matinn áðan og þá kom ég auga á fersk kirsuber. Ég lifði bókstaflega á þeim þegar ég var í Bandaríkjunum. Þannig að ég keypti auðvitað stóran flottann poka af þeim og ég fæ meira að segja að borða þau öll ein því að Erni fannst þau ekkert sérstök (líklegast vegna þess að það er steinn inní þeim). En meira hef ég ekkert að segja í bili.....
P.S. músin hefur sem betur fer ekki komið aftur í heimsókn.

<< Home