Monday, January 03, 2005
Gleðilegt nýtt ár!!
Þá er ég komin til Englalands aftur (eins og pabbi segir það). Og ég er alein í höllinni!! Örn kemur ekki fyrr en 14 janúar, sem er ágætt þó að það sé það auðvitað ekki. Ég þarf að vinna í stóru ritgerðaverkefni núna þennan mánuðinn. En Örn er á fullu að lesa og læra undir próf, þannig að þeir sem hafa færi á, EKKI trufla hann.
Ferðin heim gekk vel en hún tók allan daginn ég vaknaði um klukkan 5 í morgun og fór út á völl og var komin heim klukkan 17 í dag. Ég gat nánast ekkert sofið á leiðinni vegna þess að ég þorði ekki að sofna í lestinni og missa af stoppinu mínu, það hefði verið alveg týbískt. Þegar ég kom heim þurfti ég nánast að brjótast inní íbúðina vegna þess að hurðahúnninn er að bila svo nú hef ég alltaf rifu á glugga svo ég geti prílað inn ef húnninn gefur sig endanlega. Þegar ég ætlaði svo að kíkja til Ingó, Susan og Söru þá var eitthvað að bílnum. Bremsurnar eru líklegast búnar að læsa sig í “dekkin” svo bíllinn ískrar og vælir. Ingó kom og náði í mig og prófaði bílinn í leiðinni. Hann náði að keyra hann til þannig að það var eins og ekkert að honum. Þannig að ég keyrði hann heim til Ingós og það gekk eins og í sögu. En þegar ég ætlaði svo heim þá var hann kominn í sama farið svo það þurfti að fara að keyra hann til aftur, svo ég ætla bara að láta líta á hann á morgun og fixa þetta litla vandamál. Ég labba þá líklegast í skólann á morgun sem er alls ekki slæmt því veðrið er svo gott hérna, loftið reyndar aðeins farið að kólna en samt ekki mikið. Ég væri reyndar alveg til í að vera í fríi aðeins lengur en það er held ég bara leti. Jæja en nú ætla ég fara að sofa það sem þetta er búinn að vera allt of langur dagur.

<< Home