Tuesday, January 04, 2005
Ég er búin að vera á fullu að læra í dag. En í kvöld fór ég á pöbbarölt með Söru og indverskri stelpu sem var að koma til Sheffield. Hún fer svo til London í mastersnám. Við Sara sýndum henni bæinn og pöbbana og skemmtum okkur vel. Við enduðum á að fara inná stað þar sem var salsa tónlist og allir voru að dansa salsa. Þó að ég kunni nú ekki að dansa salsa þá fannst mér rosalega gaman að horfa á fólkið dansa. Þetta er mjög hraður og skemmtilegur dans. Ég náði videoi af Söru dansa við mann sem bauð henni upp, hún stóð sig mjög vel. Allavega það var æðislega gaman. En nú ætla ég að fara að leggja mig og vera svo dugleg á morgun við lærdóminn.

<< Home