Friday, January 14, 2005

Fréttaskot:

Ég fékk panikk atak í dag þegar skólaskrifstofan sagði mér að það þyrfti að kanna lesblindupappírana og í fyrramálið á ég að fara og hitta konu niðri í bæ til þess að láta rannsaka pappírana betur. Ef ég fæ þá ekki samþykkta þá fæ ég ekki extra viku á ritgerðina eins og ég var búin að reikna með. En ég fæ pappírana samþykkta á endanum því þeir eru vel viðurkenndir og löglegir en það er bara ekki víst að ég fái samþykkt fyrir skilafrestinn á ritgerðinni.
Ceri nágranni minn kíkti til mín í dag og ég sagði henni raunarsögu mína og hún var svo sæt að bjóðast til að hjálpa mér að fara yfir textann. Hún kom til mín klukkan átta og við vorum að klára núna klukkan 23:45. Þannig að það er þungu fargi lift af mér. Ég get skilað ritgerðinni inn á morgun með góðri samvisku. En ef ég fæ auka viku þá ætla ég að taka nokkrar myndir og bæta þeim við í ritgerðina sem gæti hækkað hana aðeins, ég næ jafnvel að gera það á morgun fyrir skilafrestinn sem er klukkan 16.

Allavega er ég rosalega fegin og ánægð með þetta afrek.
Ég ætla að bjóða Joe og Ceri í mat á morgun í þakklætisskyni. Ég held ég eldi rétt Ragnhildar sem ég hef ekki eldað í langan tíma :)
|