Saturday, February 19, 2005
Haha merkis fréttir, ég verð ein með húsið í kvöld. Mér var tilkynnt í morgun að my flatmates eru öll að fara á bjór festival í einhverjum nágrannabæanna. Ég spurði hvort þau mundu gista þar yfir nótt og þá svöruðu þau að þau yrðu þarna allavega þar til þau gætu ekki staðið í lappirnar lengur...hmmm....mjög charming svar. Ég er að spá hvort ég ætti að umturna stofunni á meðan þau eru í burtu og stelast til þess að þrífa pínulítið og kasta nokkrum teppum, eða svo, út í leiðinni. En þau eru algjörir teppa unnendur því þau eru með teppi bókstaflega allstaðar, þau eru uppá veggjum og yfir sófum og stólum og borðum. Neinei ég held ég láti stofuna bara í friði, þau geta haft hana eins og þau vilja. En annars eru þau ágætis fólk og mjög næs við mig þrátt fyrir öll teppin og óþrifin.
Ég fór út með Söru og Charlot í gærkvöldi og alltaf er ég að kynnast nýjum pöbbum og nýju fólki hérna. En það var bara mjög gaman hjá okkur og við tjúttuðum eitthvað frameftir. En svo í morgun vaknaði ég með hörku kvef svo ég er núna að fá mér te og reyna að hrista það af mér.
Í dag á Hrafn Þorri frændi minn afmæli svo ég óska honum innilega til hamingju með daginn :)

<< Home