Friday, January 28, 2005
Í morgun var ég mætt niðrí bæ klukkan hálf tíu til þess að fara á kaffihús. En því miður þá voru þau eigilega öll lokuð svo mér tókst bara að taka nokkrar myndir í gegnum gluggana. En svo kom ég að stað sem hét the cofé place og var opinn svo ég fór auðvitað þar inn. Þetta var pínulítill staður með fullt af fólki svo ég kunni ekki við annað en að útskýra mig fyrir waitressunni og fá leyfi til að taka myndir. Það var allt í góðu með það svo ég fór að taka myndir af stólum þar sem enginn sat. En þá situr rosalega stór og mikill kall við hliðina á þessum stólum og fer að spurja mig hvort ég sé að taka mynd af honum. Þá fer ég að útskýra mig fyrir honum líka og hann fer að segja mér að þetta kaffihús sé að fara að brjóta niður veggi og stækka við sig, svo að þeim hljóti nú að vanta stóla. Ég brosti bara og sagði að það kæmi sér nú vel, en áður en ég veit af þá er hann búinn að kalla á waitressuna og fer að útskýra fyrir henni að ég sé að hanna kaffihúsastóla og hvort að staðurinn vildi ekki kaupa stóla af mér. Úff mig langaði að hlaupa út. waitressan sagði að staðurinn væri líklegast búinn að kaupa stóla svipaða og þá sem þau voru með svo að allt sé í stíl. Ég gat ekkert sagt við hana vegna þess að kallinn var að vera næs. Hræðilega kjánalegar aðstæður.

<< Home