Wednesday, January 26, 2005

Ha ha, nú veit ég af hverju ég átti að fara á kaffihús og bari á föstudaginn. Næsta verkefnið mitt er að hanna stól fyrir kaffihús og ég fer á kaffihús í research tilgangi en ekki kaffibolla tilgangi. Ég var að fá að vita í dag hvað ég á að gera þessa önnina og það er ekkert lítið. En verkefnin eru rosalega spennandi, krefjandi og áhugaverð.

Við (bekkurinn minn) fengum hrós frá kennaranum okkar í dag. Hann sagði að flestir stólarnir væru mun betri og vandaðari en hann hefði ýmindað sér að mundi koma frá fyrsta árs nemum. Hann sagði að við gætum kíkt á vinnubrögðin hjá fyrsta árs nemunum í product design og það væri mikill munur þar á. Það er allavega alltaf gaman að fá hrós sérstaklega þegar maður er búinn að leggja svona mikið á sig þó að hrósið hafi nú ekki verið beint til mín neitt sérstaklega.

Ég er að fara að flytja í herbergi sem er rétt hjá skólanum mínum. Það gæti eigilega ekki verið nær honum. En það er betra fyrir okkur Örn þannig. Ég fæ herbergið afhent á þriðjudaginn 1. febrúar. Það eru alls 4 herbergi í húsinu og við deilum sameiginlegu baðherbergi, eldhúsi og stofu.
|