Tuesday, February 15, 2005
Nú er orðið of langt um liðið frá því að ég skrifaði síðast. En ég var að koma frá Köben þar sem næstum öll fjölskyldan hittist, allir nema “prinsinn af Jöklafold”. En það var æðislegt að hitta alla og gera skemmtilega hluti saman. En við pabbi fórum á sýningu þar sem verið var að kynna nýustu tískuna í fatnaðri, skóm, veskjum og allskyns aukahlutum. Það var mjög gaman að fara á svona stóra sýningu sem er svo stór að það er ekki hægt að sjá nema lítið brot af henni á einum degi. En á laugardaginn kom Brian frá Arhus, þar sem hann býr, og hitti okkur. Þegar hann kom hafði skollið á “snjóstormur” en við hörkuðum hann nú af okkur eins og ekkert væri eðlilegra og löbbuðum strikið og fórum svo á sýningu. Þegar við loksins játuðum okkur sigruð við “snjóstorminn” þá voru flestir strætóar hættir að ganga og mjög erfitt að fá taxa. Danirnir urðu víst eitthvað skefldir við smá slyddu og rok í bland, svo þeir ákváðu bara að fara heim og hlýja sér. En við komumst heim á endanum með leigubíl en svo vorum við að fara út að borða og í leikhús. Við vorum farin að sjá fyrir okkur að það yrði allt fellt niður vegna þess að það leit ekki út fyrir að við fengjum leigubíl. Leigubílastöðvarnar svöruðu ekki einusinni í símann. Pabbi tók þá uppá því að stökkva út í óveðrið og gr. Hann náði mjög fljótlega einum taxa sem við stelpurnar og Brian fórum í en svo stóðu pabbi og Gummi eftir og reyndu að fá annan. Þegar við komum á matsölustaðinn þá voru þeir búnir að gefast upp á töxunum og búnir að labba alla leið í metróinn og voru í lestinni á leiðinni til okkar...úfff þvílíkar hetjur. Þeir komu svo vel vatnsgreiddir á veitingahúsið :) En þetta kvöld heppnaðist ótrúlega vel og það var alveg æðislega gaman hjá okkur.
En núna er ég komin heim og tilbúin til að takast á við verkefnin sem ég er með í skólanum. Bless í bili...
En núna er ég komin heim og tilbúin til að takast á við verkefnin sem ég er með í skólanum. Bless í bili...

<< Home