Thursday, January 27, 2005

Það er búið að pirra mig frá því að ég kom til Englands að englendingarnir bera nafnið mitt alltaf fram sem Börglind og mér finnst það svo ljótt. Sama hvað ég segi nafnið mitt skýrt með áberandi BERG þá endurtaka þeir alltaf BÖRG....vonlaust mál. Þar til um daginn. Mamma hennar Susan var að kvarta við hana um að hún gæti ekki borið nafnið mitt fram. Þá tók Susan það ráð að skrifa nafnið mitt svona niður: Bear-glind og þá bar hún nafnið mitt flullkomlega rétt fram. Ég ætti kanski bara að breyta nafninu mínu og byrja að stafa það svona...
|