Friday, March 04, 2005

Ég skrapp heim úr skólanum til að fá mér hádegismat. Maturinn í kaffiteriunni er eitthvað það versta sem ég hef upplifað, en samt er ég ekki matvond !! En þegar hádegishléinu líkur þá fer ég aftur uppí skóla og klára síðustu lóðningarnar á stólnum !!! Þegar því líkur þá fer ég með stólinn í sandblástur og þá er hann tilbúinn :) fyrir utan að ég á eftir að vinna aðeins í að útbúa setu og bak á hann. En ég á eftir að klára teikningar af stólnum, research vinnu möppu, og markaðs- og verkfræði skýrslur þannig að ég verð á kafi þangað til ég skila þessu inn 14 mars. En svo fer ég með bekknum til London 16-17 mars. Þetta verður meira skólaferð frekar en skemmtiferð, þó að við eigum svo sannarlega skemmtiferð skilið, eftir alla stólasmíðina!! (hmmm....kanski aðeins of mikið af upphrópunar merkjum í þessum pistli)
|