Saturday, February 26, 2005

Þá er snjórinn búinn að forða sér fyrir sumarið...vona ég allavega.
Nú fer að líða að páskunum og allar búðir eru að fyllast af páska skrauti og nammi og dóti. En páska eggin hérna minna mig á páska eggið sem ég fékk alltaf þegar ég var lítil. Það eru þessi egg sem eru úr pappa skreytt með páska myndum að utan og svo eru þau opnuð og maður getur sjálfur sett nammi inn í þau. Það er mjög sniðugt að fá svoleiðis egg maður getur alveg ráðið hvað er inní þeim ;)
|