Monday, February 21, 2005
Þetta kvef er búið að ágerast þannig að ég er næstum búin að missa röddina líka, þrátt fyrir nokkra bolla af tei á dag. Þannig að ég ákvað í morgun að fara til læknis sem mér var úthlutaður af skólanum.Ég ætlaði að biðja hann um að útvega mér pensilín. Það var ekkert símanúmer með á pappírunum sem ég fékk svo ég varð að labba þangað en það var nú ekki langt labb. Þegar ég kom inn sagðist ég ætla að panta tíma hjá lækni eða fá að hitta lækni ef það væri hægt. Nei nei þá var þetta fyrirtækið sem sér um að senda þessa læknapappíra til fólks !!! Mér finnst nú svolítið skrýtið að senda manni lítið spjald þar sem á stendur nafnið mitt og nafnið á lækninum mínum og svo er heimilisfang undir nafni læknisins en þá er það heimilisfangið hjá pappírsdreifingunni. Ég sá á konunni í afgreiðslunni að hún sárvorkenndi mér því að það snjóaði úti, svo hún gat séð að ég hafði komið labbandi, og svo var ég bæði raddlaus og með eldrautt stíflað nef. Hún var mjög almeninleg og dróg fram kort og útskýrði fyrir mér hvernig ég ætti að komast til læknisins. Ég fékk ekkert pensilín en ég fékk þó símanúmerið og heimilisfangið hjá lækninum mínum svo að nú á ég pantaðan tíma í fyrramálið.
En þessir englendingar geta stundum verið svolítið spes ;)
En þessir englendingar geta stundum verið svolítið spes ;)

<< Home