Sunday, March 06, 2005
Í gær átti Joe afmæli. Hann bauð okkur Erni í mat ásamt 15 öðrum svo það var verið að elda og undirbúa allan daginn. En vinir hans komu úr öllum áttum, sumir frá London aðrir frá Burmingham og frá fullt af fleiri stöðum. En við borðuðum dýrindis lasagnia með bökuðum kartöflum, salati og hvítlauksbrauði. Og svo var auðvitað afmæliskaka í eftirrétt :) Eftir veisluna fórum við öll niður í bæ á nokkra pöbba, það var bara mjög gaman.
En núna hef ég trú á því að sumarið sé alveg að koma vegna þess að það er sólskyn úti og æðislegt veður en það er samt kalt loft svo þetta er hálfgert gluggaveður. Ég hef aldrei séð enska sumarið svo að það verður gaman að sjá öll risa stóru trén fara að lifna við.

<< Home