Saturday, March 19, 2005
Kvödlið áður en ég fór til London þá fór ég með Joe og Ceri á uppboð. Nemendur í skólanum mínum höfðu gefið ýmis verk til styrktar einhverju. Þetta voru mest megnis málverk. Við vorum að blaða í málverkalistanum áður en að uppboðið byrjaði og þá sá ég mynd sem mér fanst rosalega flott, eini gallinn var að hún var svo stór að ég hélt að ég hefði ekki pláss fyrir hana í herberginu mínu. Þessi mynd var frekar aftarlega í listanum svo ég gat ekki verið við allt uppboið því ég þurfti að fá svefn fyrir Londonferðina. Það var alveg fáránlegt hvað myndirnar voru að seljast á, flest fór á ca 2-8 pund, og margar myndanna rammaðar inn, þetta varla borgaði fyrir ramman. Gallinn var bara að þetta voru flest stúdentar sem voru við uppboðið. En það voru einstaka myndir sem fóru á 30 pund og sú sem seldist hærst fór á 60 pund. En nóg um það...
Í kvöld fórum við Örn með ís í heimsókn til Joe og Ceri. Þau sýndu okkur hvað þau höfðu fengið á uppboði og drógu svo fram flotta málverkið sem mig langað í og sögðu mér að þau hefðu boðið í hana hana handa mér, og að þetta væri fyrirfram afmælisgjöf. Ég átti ekki til orð!!! Ég var einmitt búin að vera að hugsa það í dag að ég hefði nú alveg haft nóg pláss fyrir myndina fyrir ofan rúmið mitt. Ég knúsaði þau og er enþá með bros á vör :)

<< Home