Sunday, May 22, 2005
Eurovision partyið hjá Mæju var mjög skemmtilegt fyrir utan kanski eurovision keppnina sjálfa, sérstaklega stigagjöfina. Við vorum ansi margar þjóðir samankomnar í stofunni, það voru svíar, finni, englendingar, og svo að sjálfsögðu íslendingar. Ótrúlegt en satt þá voru íslendingarnir í meirihluta, allt vinkonum Mæju að þakka ;) En enski þulurinn í eurovision var mjög fyndinn og skemmtilegur....hann sagði meðal annars þegar normenn komu á sviðið að búningarnir væru svo vel hannaðir að við gætum séð hvað þeir fengu sér í morgunmat! En Mæja kom líka með góðar línur...hún fór í bolinn sinn með íslenska skjaldarmerkinu og hengdi upp borða með íslensku fánunum... og sagði svo: althoug we are out, we are still about!! Hehe mjög fyndið.
Þessi sunnudagur (sjómannadagurinn) var mjög notalegur og skemmtilegur :) Ég og María fórum með Ingó og Susan til Grimsby í íslenska messu sem er haldin árlega. Ingó og Susan fara á hverju ári. Presturinn, Séra Sigurður Arnarson og kórinn frá London komu og héldu notalega messu með íslendingunum og hálf íslenskur strákur var fermdur í messunni. Það var sérstaklega notalegt að heyra íslenska sálma sungna. Eftir messuna var farið yfir í sal rétt hjá kirkjunni og boðið uppá kökur, tertur, kleinur og flatkökur. Þvílíka veislu hef ég ekki farið í lengi. En það var gaman að mingla við íslendingana. Við Mæja vourm skráðar á lista svo að við fáum bréf send um uppákomur s.s. þorrablót og vorfagnað.
En núna get ég ekki beðið eftir að næsta vika hefjist svo að ég geti farið að ljúka við verkefnið mitt :)

<< Home