Saturday, April 23, 2005

Í gærkvöldi bauð María mér í mat. Ég útbjó eftirrétt handa okkur þar sem var meðal annars hand þeittur rjómi, sem tók dágóða stund að þeyta og mikla orku. En María og Karen, sambýlingur, báru á borð lax með aspas og bakaðar kartöflur og heima gerð sósa, þetta var algjört sælgæti.
Eftir matinn fór ég og hitti bekkjarfélaga og við kíktum á pöbbinn, og svo fórum við á skemmtistað sem við vorum búin að kaupa miða á, alveg hreint ágætis kvöld.
Ég er komin með kenningu um stúdenta hérna. Stúdentarnir djamma á virkum dögum en fólk sem er í vinnu djammar um helgar. Fyrst hélt ég bara að þetta væri einhverskonar sjálfspinting hjá nemunum að vaka langt fram á nótt við að skemmta sér og fara svo í skólann daginn eftir. En ég er komin með kenningu á þetta: Stúdentar djamma á virkum dögun og vinna um helgar. Vinnandi fólk vinnur á virkum dögum og notar helgarnar til að djamma.
En í dag var bara alveg rosa fínt veður hérna, loksins létti til og sólin náði að skýna og það var bara frekar hlýtt. Í gæri hélt ég að það mundi ekki koma neitt sumar hérna áður en ég fer til Íslands vegna þess að það var þungskýjað, þoka, rigning og frekar kallt, alla vega ekki hlýtt. En ég notaði góða veðrið og fór út að skokka svo ég haldi áfram að telja það upp fyrir ykkur.
|