Sunday, April 24, 2005
Ég er búin að fara í tvo óvenju stóra göngutúra í dag. Ég labbaði heim úr bænum vegna þess að það var svo gott veður, eitthvað sem ég hef aldrei gert áður. Það er líka ekki hægt að reikna með að ná strætó, guð má vita hvenær þeir koma. En þetta var mjög langur göngutúr en rosalega góður og hressandi út af fína veðrinu. Á leiðinni ákvað ég að taka smá öðruvísi leið heim og labba í gegnum Botanical garden en ég hélt ég vissi um leið þar í gegn sem mundi koma mér nokkurnvegin nær heimili mínu. En ég villtist auðvitað í þessum yndis fagra garði þó nokkra stund, en kom að lokum að hliði, en þá sá ég að þetta var sama hliðið og ég hafði komið inn um. En jæja það var svo sem allt í lagi ég græddi þarna ágætis göngutúr :)
En svo seinna um daginn ákvað ég að fara út í búð og labbaði út í nálægustu verslunina sem er samt ekkert nálægt en þegar ég kom þangað þá var henni að loka svo ég tók enþá stærri hring og fór í nálægasta Tesco og rétt náði inn þar áður en lokaði. En þannig að ég er í dag búin að fá mér tvo stóra göngutúra í sólskyninu og þar af leiðand tvær fjallgöngur upp brekkuna mína. Ég þarf allavega ekki að fara út að skokka í dag ;)

<< Home