Wednesday, May 18, 2005

Ég mæti í skólann kl 9 á morgnana og vinn stanslaust í verkefninu mínu til ca 5-6. Þetta tekur rosalega á. Ég held mig bara í skíatagallanum þangað til þetta verkefni er búið. Það er sama hvað ég leysi mörg vanamál það myndast bara enn fleiri...úff. En þetta hefst á endanum. Enn tæknimannanna nefndi það í dag hvað væri mikið rik í loftinu, en það er ekkert skrýtið...27 nemendur að vinna í við og pussa stanslaust...þið getið ýmindað ykkur.
En ég verð að koma mér úr skítagallanum og rikinu fyrir annaðkvöld því þá er ég að fara út að borða því að Stefán á afmæli á föstudaginn en heldur uppá það annaðkvöld. Kærastan hans kemur líka og ég er að fara að hitta hana í fyrsta skipti :)
En nú fer að styttast í að ég setji mynda albúm inná bloggið mitt..5..4..3..2.......
|