Friday, May 13, 2005

Eins og þið sjáið þá er ég ekki að skrifa inná bloggið mitt en það eru nú margar ástæður fyrir því, eða allavega nokkrar. Bloggsíðan mín er eitthvað biluð og svo hef ég mikið að gera við að klára verkefni fyrir lok þessarar skóla annar.
Eitt af verkefnunum er hópverkefni þar sem við eigum að skoða eitthvað og vera sérfræðingar í því. Hópurinn minner að verða að sérfræðingum um gler og öllu sem því fylgir. Það er mjög áhugavert. Við fórum í gær til Nottingham og hittum glerlistakonu og hún lét okkur prófa aðeins að vinna í glerinu, það var mjög scary en líka gaman :) Þessi kona sagði mér að hún vissi um aðra glerlista konu með gallerý ekki langt frá henni sem væri íslensk. En það var líka rosa gaman að keyra þangað því að verðið var svo gott og ladslagið fallegt.
|